Plokkfiskurinn góði
3 flök af fiski ( Þorskur eða Ýsa )300 gr af soðnum karftöflum
1/2 liter mjólk
1 laukur
1 tsk karrý
100 gr smjörbolla ( hnoðað saman hveiti og smjöri ca. 50/50)
1-2 tsk af hvítum pípar
Sjóða þarf fiskinn og karftöflurnar. Laukurinn skorin smátt og settur í pott ásamt karrýinu. Smjörbollan sett úti og hitað upp við vægan hita þar til að smjörbollan er bráðin og sósan farin að þykkna. Þegar sósan er klár er fiskurinn og karftöflurnar brytjað út og piprað eftir smekk. Þegar búið er að setja þetta saman er gott að setja smá klípu af íslensku smjöri og leyfa því að bráðna.
Meðlæti: Rúbrauði,smjöri, harðsoðnum eggjum og etv. eplabátum.
Drykkir: Vatnið góða eða mjólk


1 Comments:
Já segð þú mér....spurning að laga þetta og setja hana inn í uppskriftina..
Stelpur þið verðið að prúfa þessa uppskrift hún er mjög góð :)
3:31 AM
Post a Comment
<< Home